Fréttastofa RÚV
Forseti Hagsmunasamtaka knattspyrnukvenna segir hugsanabreytingu nauðsynlega til að taka á kynjamisrétti innan fótboltans. Undanfarnar tvær helgar hafa ungir knattspyrnukappar, á aldrinum 4-9 ára, keppt á TM-mótinu í fótbolta, á vegum Stjörnunnar. Á opinberri upplýsingasíðu þess birtust færslur þar sem börnunum var þakkað fyrir þátttökuna. Strákum í 6. flokki var þakkað fyrir komuna með myndskeiði af glæsilegum tilþrifum en stelpum í sama flokki var þökkuð þátttakan með mynd af bangsa. Á sunnudag, þegar yngstu knattspyrnukapparnir höfðu att kappi, var þakkað fyrir helgina með löngu myndskeiði af tilþrifum stráka. Engin stelpa sést í myndbandinu. Stjarnan baðst afsökunar í gær og sagði það mistök að engin stelpa var í myndböndunum. Færslurnar og myndböndin hafa verið fjarlægð af síðunni. Segir börn taka eftir svona hlutum Ingunn Haraldsdóttir, forseti Hagsmunasamtaka knattspyrnukvenna, var gestur Morgunútvarps Rásar tvö í morgun. Hún segir það vonbrigði að sú staða sé enn að koma upp að stelpur séu ekki jafningjar stráka í fótboltanum. Er þetta gömul saga og ný? „Jú, þetta er því miður eitthvað sem við erum að sjá allt of oft.“ Ingunn segir að þó að sjálfboðaliðar hafi verið að störfum við TM mótið og að beðist hafi verið afsökunar á mistökunum þá gerist það of oft að stelpur gleymist. „Stelpurnar eru afgangsstærðin,“ segir Ingunn og bætir við að breyting á hugarfari sé nauðsynleg. Ingunn segir það ekki ætlun neins að mismuna börnum en þetta sé þó raunveruleikinn, strákar gangi fyrir. „Það er rosalega sárt sem ung stelpa, ég man bara sjálf eftir því sem fótboltakona eða lítil fótboltastelpa. Maður tók eftir því. Börn taka eftir svona hlutum.“ Nauðsynlegt að fjárfesta í kvennaknattspyrnunni Hvað þarf til að þetta breytist? „Þetta er bara eitthvað svona greipt í okkur, það er þetta hugsunarleysi sem við berum alltaf fyrir okkur.“ Ingunn segir nauðsynlegt að taka umræðuna þegar svona atvik koma upp, þetta megi ekki gerast. „Það er voðalega þreytt að vera að eiga þessar samræður aftur og aftur.“ Ingunn segir að með samfélagsmiðlum og auknum sýnileika sé kynjamisréttið innan fótboltans orðið augljósara. „Það er ekki bara væl ef einhver kvartar yfir svona.“ Ingunn segir að margt hafi þó þokast í rétta átt en alltaf megi gera betur. Hún segir það misjafnt eftir félögum hvernig staðið er að þjálfun stelpna og að í mörgum félögum halli enn á stelpur. „Þú sérð þetta ekki gerast í hina áttina.“ Að mati Ingunnar er kynjamunurinn áberandi upp í meistaraflokka. „Við erum í rauninni bara kostnaðarliður, erum ekki að skila neinu inn.“ Hún segir nauðsynlegt að fjárfesta í kvennaknattspyrnunni til að fá meira út úr henni. Mikill meðbyr sé um allan heim með kvennaknattspyrnu í kjölfar þess að meiri áhersla var lögð á hana. Ingunn vill að sama þróun verði hér. Lægra miðaverð á leiki til að laða fólk á völlinn Ingunn segir að það viðhorf sem birtist í myndböndum TM mótsins fylgi stelpum alla leið upp í atvinnumennsku. Hún segir að mikilvægt sé að hafa aðra nálgun við þróun kvennaknattspyrnunnar heldur en karla. Að hennar mati ætti KSÍ að skoða að hafa lægra miðaverð á landsleiki með kvennalandsliðinu, til að laða fólk á völlinn. „Við þurfum ekki að gera allt eins karla- og kvennamegin. Núna erum við með tækifæri til að fjárfesta í og stækka kvennaknattspyrnuna.“ Stjarnan hefur beðist afsökunar á því og sagt það mistök að engin stelpa hafi sést í myndböndum af TM mótinu í fótbolta, sem fram fór undanfarnar tvær helgar. Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna segja að það myndi aldrei gerast að strákar gleymist.
Go to News Site