Fréttastofa RÚV
Engin írönsk sendinefnd hefur lagt upp í ferð til Pakistan í friðarviðræður við Bandaríkjamenn. Íranska ríkissjónvarpið hefur þetta eftir ónafngreindum embættismanni. Hann segir þátttöku Írana fara eftir breytingum á hegðun og afstöðu Bandaríkjamanna. New York Times greinir þó frá því að Íranar undirbúi að senda fólk til Pakistan til viðræðna. Bandarísk sendinefnd kom til Islamabad höfuðborgar Pakistan í gær og er JD Vance varaforseti væntanlegur þangað í dag. Á meðan er ekki að sjá sáttavilja í opinberum ummælum leiðtoga. Þingforseti Írans sagði á X að Íranar væru að undirbúa ný tromp til að sýna á vígvellinum og að þeir myndu ekki sætta sig við samningaviðræður undir hótunum. Donald Trump forseti Bandaríkjanna hafnaði því að hann væri undir þrýstingi að ná samkomulagi eins og Íranar vilja meina. Hann segir afar ólíklegt að vopnahléið, sem á að renna út á morgun, verði framlengt án samnings. Á meðan hefur spenna aukist í Hormússundi eftir að bandaríski sjóherinn tók yfir íranskt flutningaskip á sunnudag. Sjóherinn segist þegar hafa snúið 27 írönskum skipum frá á grundvelli hafnbanns sem Bandaríkjamenn settu á. Xi Jinping forseti Kína hvatti í morgun til þess að umferð með olíu um sundið yrði eðlileg sem fyrst, en þetta er í fyrsta sinn sem hann gerir það opinberlega. Það bendir til þess að hann hafi áhyggjur af áhrifum lokunarinnar á efnahag Kína.
Go to News Site