Fréttastofa RÚV
Handknattleiksdeild ÍR greindi frá því á Facebook í morgun að þjálfari kvennaliðs félagsins, Grétar Áki Andersen, hafi látið af störfum að eigin ósk. Handkastid.net greindi frá þessu í gærkvöldi og það var svo staðfest í morgun. Hann tók við starfinu af Solveigu Láru Kjærnested fyrir ári síðan eftir að hafa áður verið aðstoðarþjálfari í eitt ár. Samhliða stýrði hann 3. flokki félagsins. Í yfirlýsingu ÍR segir ekkert um ástæður þess að Grétar Áki hafi óskað eftir að hætta né hver taki við. ÍR hefur komið skemmtilega á óvart í Olísdeild kvenna undanfarin ár og varð í 4. sæti deildarinnar í vetur en féll úr keppni gegn Fram í úrslitakeppninni. Grétar Áki AndersenRÚV / Mummi Lú
Go to News Site