Collector
Einn handtekinn og annar á sjúkrahús eftir lögregluaðgerðir | Collector
Einn handtekinn og annar á sjúkrahús eftir lögregluaðgerðir
Fréttastofa RÚV

Einn handtekinn og annar á sjúkrahús eftir lögregluaðgerðir

Lögreglan á Akureyri naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra í gærkvöldi þegar hún hafði afskipti af ágreiningi tveggja manna í Gránufélagsgötu á Akureyri. Töluvert umfang fylgdi aðgerðinni en að minnsta kosti fimm lögreglubílar og einn sjúkrabíll tóku þátt. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Akureyri lék grunur á líkamsárás og heimilisofbeldi. Gerandinn hafi neitað að koma út og var talinn vopnaður og þess vegna var sérsveitin kölluð til. Hann var handtekinn og færður í fangaklefa en sá slasaði hafi verið fluttur á sjúkrahús með minniháttar meiðsl. Rannsókn málsins stendur yfir og ekki er búið að yfirheyra þann grunaða.

Go to News Site