Collector
Gæsluvarðhald framlengt vegna smygls með Dettifossi | Collector
Gæsluvarðhald framlengt vegna smygls með Dettifossi
Fréttastofa RÚV

Gæsluvarðhald framlengt vegna smygls með Dettifossi

Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir þremur mönnum sem grunaðir eru um aðkomu að smygli á rúmlega 14 lítrum af amfetamínbasa til landsins með flutningaskipinu Dettifossi. Þetta staðfestir Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, upplýsingafulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, við fréttastofu. Mennirnir voru handteknir í síðustu viku og úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald. Gæsluvarðhald yfir einum hefur verið framlengt á grundvelli rannsóknarhagsmuna um tvær vikur, en um eina viku yfir hinum tveimur sem eru í haldi. Sex voru handteknir en þremur sleppt stuttu síðar. Tveir þeirra sem eru í haldi eru starfsmenn Eimskips.

Go to News Site