Fréttastofa RÚV
Alþingi samþykkti í dag ný sóttvarnalög. Frumvarpið var samið eftir covid-faraldurinn og er yfirlýst markmið þeirra að bregðast við veikleikum sem komu í ljós í faraldrinum, gera ákvarðanatöku skýrari og gagnsærri og tryggja betra jafnvægi milli skilvirkra sóttvarna og réttinda almennings. Helstu breytingarnar felast fyrst og fremst í því að stjórnsýsla sóttvarna er endurskipulögð. sóttvarnalæknir verður skipaður beint af ráðherra og ný farsóttanefnd sett á laggirnar sem leggur til aðgerðir, á meðan núverandi sóttvarnaráð er lagt niður. Þingmenn Miðflokksins greiddu atkvæði gegn frumvarpinu en þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sátu hjá. Vildu meiri völd til þingsins Þingmenn Sjálfstæðisflokks í velferðarnefnd, Sigurður Örn Hilmarsson og Rósa Guðbjartsdóttir, lögðu fram tillögu þar sem lagt var til að skipuð yrði rannsóknarnefnd sem myndi fara yfir aðgerðir stjórnvalda í covid-faraldrinum. Myndi sú rannsókn bæði taka til aðgerða sem voru til þess fallnar að skerða frelsi og ferðir almennings og einnig áhrif ákvarðana á atvinnulíf og efnahagsmál. Sú tillaga var felld. Helsta gagnrýni stjórnarandstöðunnar á frumvarpið sneri að aðkomu þingsins í sóttvarnarástandi. Kveðið er á um að ráðherra beri að upplýsa velferðarnefnd þingsins um leið og sóttvarnartakmarkanir eru kynntar og er einnig kveðið á um skýrslugjöf til þingsins. Það þótti stjórnarandstöðunni ekki nóg og sögðu að með frumvarpinu sé embættismönnum falið mikið vald, meðal annars að taka íþyngjandi ákvarðanir.
Go to News Site