Collector
Lögregla kölluð út vegna manns sem synti í Ölfusá | Collector
Lögregla kölluð út vegna manns sem synti í Ölfusá
Fréttastofa RÚV

Lögregla kölluð út vegna manns sem synti í Ölfusá

Lögreglan á Suðurlandi brást í dag við tilkynningu um mann sem synti í Ölfusá við Ölfusárbrúna nærri Selfossi. Íris Edda Heimisdóttir, aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi, segir að maðurinn hafi ekki verið lengi á sundi og hafi skilað sér upp á bakka árinnar stuttu eftir að lögregla mætti á vettvang. Lögregla ræddi við sundmanninn að sundinu loknu. „Þetta er hættulegt og bagalegt. Þetta er mjög straumhörð á og hún skilar illa því sem hún tekur,“ segir Íris Edda en lögreglan mælir alls ekki með því að lagst sé til sunds í ánni. Ekki reyndist þörf á að kalla sjúkrabíl eða annað viðbragð á vettvang. Sjá má manninn á sundi í stuttu myndbandi sem sent var fréttastofu hér fyrir neðan. Lögreglan á Suðurlandi brást í dag við tilkynningu um sundmann í Ölfusá við Ölfusárbrúnna nærri Selfossi. Manninum varð ekki meint af en lögregla ræddi við hann að loknu sundinu þar sem áin er mjög straumhörð og hættulegt að synda í henni.

Go to News Site