Fréttastofa RÚV
Þrír menn á þrítugs- og fertugsaldri eru grunaðir um að hafa táldregið fjórtán ára stúlkur á samfélagsmiðlum. Mæður stúlknanna, sem vilja ekki láta nafn síns getið dætra sinna vegna, segjast vanmáttugar gagnvart heilum heimi af hættum sem leynast á samfélagsmiðlum. Á föstudagskvöld stöðvaði lögreglan bíl í hefðbundnu umferðareftirliti. Í bílnum voru þrír erlendir karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri og tvær fjórtán ára stúlkur. Samsetning hópsins og ástand stúlknanna vakti grunsemdir lögreglu. Mennirnir voru handteknir og sæta nú rannsókn fyrir brot á barnaverndarlögum. Mæður tveggja fjórtán ára stúlkna þakka fyrir að lögregla hafi stöðvað bíl sem dætur þeirra voru farþegar í fyrir tilviljun á föstudagskvöld. Þrír menn á þrítugs- og fertugsaldri, sem voru með þeim í bílnum, eru grunaðir um að hafa tælt stúlkurnar. Hafði samband á Instagram og sagðist vera 17 ára Einn mannanna setti sig í samband við aðra stúlkuna á Instagram. Það fyrsta sem þau ræddu var aldur hennar. Hann sagðist vera sautján ára. Maðurinn hélt svo áfram að beita stúlkuna markvissum blekkingum í einhverja daga og vann sér inn traust hennar. Á endanum fékk hann hana og vinkonu hennar til að fara með sér og frænda sínum, sem hann sagði nýkominn með bílpróf, á rúntinn. Mæður stúlknanna segja stelpurnar fljótlega hafa áttað sig á að mennirnir væru töluvert eldri en þeir höfðu sagst vera. Þeim leið strax óþægilega í návist þeirra. „Þær voru bara hræddar og þeim leið illa þarna. Maður getur rétt ímyndað sér. Það er töluvert valdaójafnvægi þarna. Þetta eru fullorðnir menn og tvær ungar stelpur. Ég skil alveg að þær hafi ekki getað sagt bara: Við viljum fara heim.“ Áfengi sett í Red Bull án þeirra vitundar Mæðurnar höfðu reynt að hringja stelpurnar um kvöldið en slökkt var á símum þeirra, sem þeim fannst strax undarlegt. Þær segja stelpurnar hafa beðið um að fá að hlaða síma sína í bílnum, en mennirnir hafi komið í veg fyrir það. Mæðrunum brá að fá símtal frá lögreglustöðinni seinna um kvöldið. Þegar þangað var komið var augljóst að stelpurnar voru undir áhrifum. Þær segja mennina hafa gefið sér Red bull orkudrykk í bílnum og grunur er á að áfengi hafi verið sett í drykkinn án þeirra vitundar. „Þær voru undir áhrifum og augljóslega skrítnar. Þetta var bara mjög óþægilegt.“ „Lögreglan tekur á móti okkur og segir að þær hafi verið stoppaðar með þremur mönnum og maður sér strax að þetta er alvarlegt og við erum upplýstar um að það sé möguleiki á að þeim hafi verið byrlað,“ segir önnur þeirra. „Það var mjög óþægilegt að heyra það og mikið sjokk, og bara ógeðslegt.“ Tilviljun að lögreglan hafi stöðvað bílinn Stelpurnar eru hræddar og kvíðnar eftir atvikið. „Minni hefur liðið bara alveg hræðilega. Hún fékk rosalegan kvíða og leið illa og hélt að þetta væri henni að kenna af því að hún hafði verið að tala við þennan strák.“ „Mín er núna farin að finna mikið fyrir þessu og átta sig á þessum aðstæðum sem hún var í og hversu alvarlegar þær voru og hefðu getað orðið. Það er allt að skella á hana núna.“ Mæðrunum finnst óþægilegt að hugsa til þess hvað hefði getað gerst, hefði bíllinn ekki verið stöðvaður fyrir tilviljun. „Ég bara get ekki ímyndað mér það. Ég er bara svo þakklát fyrir að löggan hafi stoppað þennan bíl. Það koma allskonar hugsanir um hvað mögulega hefði getað gerst þarna og maður er auðvitað búinn að heyra ofboðslega margar sögur af ungum stelpum sem hafa lent í svona aðstæðum sem hafa bara farið mjög illa.“ Til skoðunar hvort mennirnir hafi tælt fleiri ungar stelpur Mæðurnar segjast oft hafa rætt við stelpurnar um hættur samfélagsmiðla en mönnunum hafi samt tekist að vinna sér inn traust þeirra og blekkja þær. Mæðurnar segja það sýna hve vel þeir kunnu til verka. Lögreglan er með til rannsóknar hvort mennirnir hafi tælt fleiri stelpur á svipuðum aldri á samfélagsmiðlum. „Maður upplifir mjög mikinn vanmátt í þessu máli. Maður myndi vilja vita allt og geta fylgst með öllu en það er því miður ekki þannig,“ segir önnur mæðranna. „Við vitum ekkert hver er þarna. Fólk getur bara sagt vera allt annar en það er og þetta er bara nýr heimur af hættu,“ tekur hin undir. Þær hvetja foreldra til að fylgjast vel með þeim hættum sem leynast á samfélagsmiðlum og ræða við börn sín um að treysta ekki hverjum sem er. Þá segja þær mikilvægt að brýna fyrir unglingum að vera með hlaðinn síma. „Og auðvitað þurfa að vera forvarnir og fræðsla fyrir þessa hluti.“
Go to News Site