Fréttastofa RÚV
Runólfur Þórhallsson, yfirlögregluþjónn almannavarna hjá Ríkislögreglustjóra, segir til skoðunar hjá innviðaráðuneytinu að ráðast í fyrirbyggjandi aðgerðir þar sem hætta á eldgosum er mest. Hann telur þó viðbragðsáætlanir sem nú séu til staðar vegna eldgosa og hraunrennslis duga til þess að takast á við ástandið á Reykjanesi. Þá segir Runólfur Veðurstofu Íslands og sveitarfélög hafa unnið að langtíma hættumati í sameiningu. Veðurstofan gaf í dag út nýja skýrslu um hraunavá sem sýnir hvar gæti gosið og hraun runnið á Reykjanesinu og höfuðborgarsvæðinu. Lykilinnviðir á borð við virkjanir og vatnsból eru á viðkvæmum slóðum. Runólfur segir viðbragðsáætlanirnar vera í stöðugri uppfærslu og að ástæða sé til þess að fara yfir þær þegar það komi ný gögn. „Þetta er búið að vera langtímaverkefni þannig að viðbragðsáætlanir hafa verið í skoðun samhliða þeirri vinnu.“ Dýrmæt vinna fyrir alla sem búa og starfa á svæðinu Runólfur segir mikilvægt að þau sem reki innviði á svæðinu þurfi að fara í gegnum ákveðið ferli. „Þetta er jafn dýrmætt plagg fyrir þá sem reka innviði, hvort sem það eru fyrirtæki, stofnanir eða aðrir. Þannig að þau sem eru að vinna í krítískum innviðum þurfa að fara í gegnum þetta ferli: vera með hættumat, fara í gegnum áhættugreiningarferlið, vera með áhættumat og gera viðbragðsáætlanir út frá því og fara yfir mótvægisaðgerðir til að gera aðgerðaráætlanir. Þetta er dýrmæt vinna fyrir alla sem búa og starfa á þessu svæði.“ Þyrfti að þínu mati að fara í fyrirbyggjandi aðgerðir þar sem að hættan er mest, eins og til dæmis að reisa varnargarða? „Það er eitt sem er, meðal annars, til skoðunar hjá innviðaráðuneytinu. Þar er verið að setja af stað hóp sem er að fara í innviðagreiningu á öllu Reykjanesinu og þessar skýrslur sem eru að koma út núna og eru framundan í útgáfu styðja mjög vel við þá vinnu. Þar verður skoðað hvernig við getum farið í þessar mótvægisaðgerðir og forgangsraðað þeim,“ segir Runólfur að lokum. Veðurstofa Íslands gaf í dag út nýja skýrslu sem sýnir hvar gos geti hafist og hraun runnið. Yfirlögregluþjónn almannavarna hjá Ríkislögreglustjóra segir núverandi viðbragðsáætlanir vegna eldgosa geta tekist á við ástandið á Reykjanesi.
Go to News Site