Collector
Þórdís Kolbrún önnur eftir tíma sinn í utanríkisráðuneytinu | Collector
Þórdís Kolbrún önnur eftir tíma sinn í utanríkisráðuneytinu
Fréttastofa RÚV

Þórdís Kolbrún önnur eftir tíma sinn í utanríkisráðuneytinu

Skipun Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur sem sendiherra fór í gegnum lögbundið ferli, svo sem hæfnismat, áður en af henni varð. Hún kvaddi Alþingi í dag eftir að tilkynnt var um skipun hennar. Þórdís Kolbrún, sem er fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir tíma sinn í utanríkisráðuneytinu hafa haft djúpstæð áhrif á hana. Hún gegndi embætti utanríkisráðherra frá 2022 til 2023 og aftur um hríð árið 2024. Hún var gestur í Kastljósi í kvöld þar sem Bergsteinn Sigurðsson ræddi við hana um stefnubreytinguna og sýn hennar á utanríkismálin. Þórdís Kolbrún, fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins og nýskipaður sendiherra, segir tíma sinn í utanríkisráðuneytinu hafa haft mikil áhrif á sig. Hún ræddi starfsbreytinguna í Kastljósi í kvöld. „Tímarnir bara breytast og hlutirnir gerast hratt“ Þórdís Kolbrún segir starfsbreytinguna ekki hafa verið lengi í bígerð. Hún hafi gefið Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra svar í síðustu viku. Þá hafi lögbundið ferli tekið við. Þorgerður Katrín hafi átti frumkvæði að skipuninni. „Hún bað mig einfaldlega um að hugsa það af alvöru að taka að mér þetta verkefni fyrir Ísland í ljósi þess að við þyrftum að manna þá pósta vel,“ segir Þórdís Kolbrún. Hún segist ekki hafa getað séð það fyrir, fyrir aðeins tveimur árum, að hún yrði skipuð sendiherra fyrir fertugt. „Tímarnir bara breytast og hlutirnir gerast hratt. Það var ekki þannig að ég hafi verið í leit að leið út úr stjórnmálum, eða til útlanda eða annað slíkt, en við lifum einfaldlega tíma þar sem ég er orðin nokkuð sannfærð um að það muni reyna á okkur sem fullvalda og sjálfstæða þjóð. Það muni reyna enn frekar á utanríkisþjónustuna og ég lít svo á, og er sannfærð um, að ég geti gert meira gagn fyrir Ísland með því að taka þetta að mér og byggi það á meðal annars reynslu og tengslaneti og þekkingu og öðru slíku og vonandi er það rétt.“ Öryggis- og varnarmálin verða plássfrekari Aðspurð um að hvaða leyti sendiherrar geri gagn, umfram aðra stjórnmálamenn, segir Þórdís Kolbrún það fara eftir því hvert þeir eru sendir. Verkefnin séu mismunandi eftir löndum. „En þetta er auðvitað þjónustuhlutverk – þú ert að sinna alls konar verkefnum. Okkar utanríkisþjónusta er líka smá þannig að þú gengur í öll verk. En það reynir auðvitað á bæði tvíhliða samskipti, svæðisbundið samstarf, alls kyns fundi, verkefni. Auðvitað líka borgaraþjónustu og annað slíkt.“ Þá segist Þórdís telja að öryggis- og varnarmál eigi eftir að taka meira pláss en áður. „Svo snýst þetta auðvitað mikið um mannleg samskipti og tengsl og, eftir því hvar þú ert, svona frekari samskipti, hvort sem það eru hugveitur eða ráðstefnur eða annað slíkt, þar sem að þú kemur okkar skilaboðum á framfæri,“ segir Þórdís. Þá sé það hlutverk sendiherra að leita lausna, gæta hagsmuna Íslands og að vinna samkvæmt utanríkisstefnu landsins. „Hlutverk sem ég tel mjög mikilvægt fyrir íslenska hagsmuni“ Ekki liggur fyrir hvar Þórdís Kolbrún verður sendiherra. Það hefur verið talað um að þú farir til Bretlands. Er það mikilvægur póstur núna? „Það er sannarlega mikilvægur póstur. Ég get bara sagt að ef þær hugmyndir sem hafa verið nefndar við mig ganga eftir þá er um að ræða hlutverk sem ég tel mjög mikilvægt fyrir íslenska hagsmuni,“ segir Þórdís. Eitt sinn var það alsiða að stjórnmálamenn væru skipaðir sendiherrar beint af þingi en þessu var breytt fyrir nokkrum árum, í tíð Guðlaugs Þórs ef ég man rétt, og þá fór þetta í svona formlegra ferli. Er heppilegt að það sé staðið að þessu með þessum hætti, þó enginn efist nú um hæfni þína til þess að gegna starfinu? „ Í raun má alveg segja að þessar breytingar, og ég held að mér sé óhætt að vitna í orð Guðlaugs Þórs sjálfs með það, væru einmitt hugsaðar til þess að manna ákveðna pósta með ákveðnum hætti. En þetta fór auðvitað í hið lögbundna ferli, þar sem að það er kannað bæði hæfi og hæfni og hæfnisnefnd og allt þar fram eftir götunum eins og er gert ráð fyrir í lögunum.“ „Ég hef lofað mér því að gleyma því aldrei“ Þórdís Kolbrún segir tíma sinn í utanríkisráðuneytinu sannarlega hafa breytt henni. „Ég hélt aldrei, og minni kynslóð var sagt, að svona hlutir myndu ekki gerast aftur í álfunni okkar og einhvern veginn að þetta kerfi væri bara komið til að vera. Ég hélt aldrei að það myndi reyna með þessum hætti á svona grundvallarafstöðu og grundvallargildi og hagsmuni. Ég hef lofað mér því að gleyma því aldrei, alveg sama hvað gerist,“ segir Þórdís Kolbrún. Því miður telji hún hluti áfram eiga eftir að versna áður en þeir verða betri. „Þess vegna skiptir máli að við öll vöndum okkur. Ekki bara sendiherra og ekki bara utanríkisráðherra heldur þingmenn og leiðtogar í samfélaginu, hvort sem það er í kennarastétt eða menningarstétt eða fjölmiðlum eða akademíu eða öðru. Ég bara held að það muni skipta máli að fólk láti það sig það varða og reyni að skilja hvað er að gerast til þess að við getum búið okkur undir breytingar á næstu misserum.“

Go to News Site