Collector
„Vikugamall þegar ég fór fyrstu ferðina“ | Collector
„Vikugamall þegar ég fór fyrstu ferðina“
Fréttastofa RÚV

„Vikugamall þegar ég fór fyrstu ferðina“

„Algjör forréttindi að komast í sveit,“ segir kona sem ver fríum og sumrum á Dalatanga í Mjóafirði, sem er austasta byggðarból landsins. Þangað er ekki þrautalaust að komast yfir vetrarmánuðina. Sævar Egilsson Mjófirðingur sér um áætlunarferðir á milli Mjóafjarðar og Neskaupsstaðar tvisvar í viku átta mánuði á ári, eða þann tíma sem ekki er fært að fara til Mjóafjarðar landleiðina. Sævar flytur allar vörur til Mjóafjarðar yfir þennan tíma – póst, farþega og allt þar á milli. Kastljós slóst í för með Sævari og hans föruneyti í dymbilvikunni.

Go to News Site