Fréttastofa RÚV
Yfirvöld í Flórída hafa hrundið af stað rannsókn til að kanna hvort gervigreind hafi spilað hlutverk í banvænni fjöldaárás við Ríkisháskólann í Flórída á síðasta ári. James Uthmeier, ríkissaksóknari Flórída, segir að ákveðið hafi verið að ráðast í rannsóknina eftir að saksóknarar skoðuðu samskipti hins grunaða árásarmanns og gervigreindarspjallmennisins ChatGPT, sem er í eigu OpenAI. „Ef ChatGPT væri manneskja væri það að horfa fram á ákæru fyrir morð,“ segir Uthmeier. Ríkissaksóknarinn bendir á að lög í Flórída kveði á um að hver sá sem aðstoði við eða ráðleggi öðrum um hvernig fremja skuli glæp megi vera skilgreindur sem samverkamaður. Þannig geti sá aðili verið sóttur til saka líkt og sá sem framdi verknaðinn. Phoneix Ikner, sem grunaður er um skotárásina, er sagður hafa leitað ráða hjá ChatGPT varðandi hvers kyns skotvopnum og skotfærum hann ætti að beita í árásinni. Þá spurði hann gervigreindarmennið á hvaða tíma æskilegast væri að framkvæma árásina. Uthmeier greindi frá þessu á blaðamannafundi í dag. Tvítugur sonur lögreglukonu Það var fyrir rétt rúmu ári, eða 17. apríl 2025, sem árásarmaður skaut á nemendur við Ríkisháskólann í Flórída. Hinn grunaði, Ikner, var þá aðeins tuttugu ára gamall. Sýslumaður í Leon-sýslu greindi frá því um leyti árásarinnar að Ikner hefði sjálfur verið nemi við skólann. Þá er hann sonur aðstoðarlögreglustjóra í sýslunni, sem starfað hafði hjá embættinu í einhver átján ár, og hafði fengið þjálfun á vegum embættisins í meðferð skotvopna. Tveir menn voru drepnir í árásinni og sex aðrir voru særðir. Ikner hafnaði sjálfur á spítala eftir árásina en slasaðist þó ekki alvarlega. OpenAI segist enga ábyrgð bera „Fjöldaskotárásin við Flórída State-háskóla í fyrra er hræðilegur atburður. En ChatGPT ber ekki ábyrgð á honum,“ hefur AFP-fréttaveitan eftir talsmanni OpenAI. „ChatGPT útvegaði svör sem byggðust á staðreyndum við spurningum með upplýsingum sem voru víða aðgengilegar á veraldarvefnum. Það hvatti ekki til ólöglegs eða hættulegs athæfis.“ Þá segir talsmaðurinn OpenAI hafa borið kennsl á aðgang Ikners og veitt lögreglu aðgengi að honum eftir árásina. „Verðum að komast að því hvort OpenAI beri refsiábyrgð“ Saksóknarar í Flórída kanna nú möguleika á því að sækja OpenAI til saka fyrir aðild að glæpnum. „Við vitum þó að í sambandi við gervigreind erum við á ótroðnum slóðum,“ segir Uthmeier. „En við verðum að komast að því hvort OpenAI beri refsiábyrgð.“ Saksóknarar eiga til að mynda eftir að kanna hvort stjórnendur OpenAI hafi vitað af möguleikanum á hættulegri hegðun í tengslum við spjallmennið ChatGPT og hvort hægt hefði verið að draga úr hættunni á því. „Það gengur ekki að gervigreindarmenni séu að ráðleggja fólki hvernig eigi að myrða aðra,“ segir Uthmeier.
Go to News Site