Fréttastofa RÚV
Fiskflutningabíll valt á hliðina á Þorlákshafnarvegi um klukkan átta í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Pétri Péturssyni, slökkviliðsstjóra hjá Brunavörnum Árnessýslu, var einn í bílnum. Hann komst út úr honum af sjálfsdáðum og fékk aðhlynningu frá starfsmönnum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Á vef Vegagerðarinnar kom fram að Þorlákshafnarvegi hafi verið lokað um tíma vegna umferðaróhappsins. Í bílnum voru fiskikör með fiskiafurðum. Pétur sagði slökkviliðsmenn vinna að því að hreinsa upp fiskiafganginn og olíu sem lekið hefur úr flutningabílnum. Búið er að opna veginn. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um opnun vegarins. Þorlákshafnarvegur er lokaður vegna atviksins.Skjámynd / Umferdin.is
Go to News Site