Collector
Þurfa að meta stöðu innviða og endurskoða viðbragðsáætlanir í Hafnarfirði | Collector
Þurfa að meta stöðu innviða og endurskoða viðbragðsáætlanir í Hafnarfirði
Fréttastofa RÚV

Þurfa að meta stöðu innviða og endurskoða viðbragðsáætlanir í Hafnarfirði

Nýjar skýrslur Veðurstofunnar um hraunavá sýna glögglega hvar gosið gæti og hraun runnið á Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu. Nokkuð af lykilinnviðum er á viðkvæmum slóðum, þar á meðal í Hafnarfirði. Grindavík og Hveragerði teljast í mesta hættuflokki. Hluti Hafnarfjarðar er einnig berskjaldaður, Vellirnir og iðnaðarsvæði í Kapelluhrauni eru á svæðum þar sem líkurnar eru metnar töluverðar til miklar. Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, fagnar því að áhættumatið liggi fyrir. Nú sé hægt að hefjast handa við að styrkja öryggi íbúa. Niðurstaðan komi ekki á óvart. „Nei, niðurstöðurnar koma ekki á óvart þar sem þetta er bær sem er náttúrulega byggður á hrauni.“ Vinna við að tryggja vatnsöryggi þegar hafin Skýrslan gefi Hafnarfirði og fleiri sveitarfélögum tilefni til þess að meta stöðu innviða og endurskoða viðbragðsáætlanir. „Að sjálfsögðu hefur þetta auðvitað þau áhrif að við þurfum að skoða til lengri framtíðar hvernig við ætlum að haga uppbyggingu hér í Hafnarfirði, en fyrst og fremst er afar gott að fá skýrsluna því þetta gefur okkur tækifæri til að bregðast betur við en ella.“ Vatnsból Hafnfirðinga í Kaldárbotnum er á efsta hættustigi. Valdimar segir vinnu við að tryggja vatnsöryggi þegar hafna. Skýrslan verður á dagskrá bæjarstjórnar í dag. „Einnig verða kynningarfundir fyrir öll framboð sem bjóða fram til sveitarstjórnarkosninga í vor því það skiptir svo gífurlega miklu máli að upplýsingarnar séu réttar og að þetta sé rætt af yfirvegun.“

Go to News Site