Fréttastofa RÚV
Linda Heiðarsdóttir og Ragnhildur Bolladóttir eru nýir ráðuneytisstjórar í mennta- og barnamálaráðuneytinu.Stjórnarráðið Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Lindu Heiðarsdóttur og Ragnhildi Bolladóttur í tvö embætti skrifstofustjóra í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins . Linda er skipuð í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu skóla- og íþróttamála. Hún hefur verið aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla frá 2015. Ragnhildur er skipuð í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu framhaldsskóla og framhaldsfræðslu. Hún hefur verið teymisstjóri í ráðuneytinu frá 2023. Áður starfaði hún sem fræðslustjóri hjá Sjúkraliðafélagi Íslands og sem sérfræðingur hjá Menntamálastofnun. Skipað er í embættin til fimm ára.
Go to News Site