Fréttastofa RÚV
Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið og spurningarnar sem þar eru lagðar til grundvallar standast alþjóðleg viðmið að mati Feneyjanefndarinnar, að því gefnu að kjósendur fái í hendur traustar og ítarlegar upplýsingar í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar. Utanríkismálanefnd Alþingis bar efni og spurningar atkvæðagreiðslunnar undir Feneyjarnefndina sem er ráðgefandi sérfræðinganefnd á vegum Evrópuráðsins um stjórnarskrármál, lýðræði og réttarríki. Umsögn nefndarinnar hefur verið birt á vef Alþingis. Nefndin leggur mikið upp úr því að kjósendur fái skýrar og hlutlausar upplýsingar í aðdraganda kosninganna, til að mynda hvað það þýðir í raun að „halda áfram“ viðræðum og það að kjósa „já“ þýðir ekki sjálfkrafa aðild að Evrópusambandinu, heldur aðeins að viðræður hefjist og að önnur þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin síðar ef til aðildar kæmi. Tímarammi ferlisins er talinn innan eðlilegra marka, þótt sumartímasetning geti valdið praktískum áskorunum. Ef niðurstaða yrði jákvæð hefði ríkisstjórnin skýrt umboð til að hefja viðræður.
Go to News Site