Collector
Birna, Ævar Þór og Jón hljóta Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar | Collector
Birna, Ævar Þór og Jón hljóta Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar
Fréttastofa RÚV

Birna, Ævar Þór og Jón hljóta Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri veitti Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar við hátíðlega athöfn í Höfða síðdegis, á síðasta vetrardegi. Verðlaunin eru veitt í þremur flokkum bóka fyrir börn og ungmenni: flokki frumsaminna bóka á íslensku, flokki myndlýsinga og flokki þýðinga. Þetta eru elstu barnabókaverðlaun landsins en þau voru fyrst veitt sem Barnabókaverðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur árið 1973. Þeirra helsta markmið er að vekja athygli á því sem vel er gert í bókaútgáfu fyrir unga lesendur og hvetja þá til bóklesturs. Verðlaunin eru veitt rithöfundum, myndhöfundum og þýðendum barnabóka fyrir metnaðarfullar ritsmíðar og þýðingar fyrir börn. Alls voru 77 bækur sendar inn til verðlaunanna í ár og fimmtán bækur, fimm í hverjum flokki, tilnefndar. Dómnefnd skipuðu þau Sigrún Margrét Guðmundsdóttir formaður, skipuð af Reykjavík bókmenntaborg UNESCO, Salka Guðmundsdóttir, skipuð af Rithöfundasambandi Íslands, og Halldór Baldursson, skipaður af Félagi íslenskra teiknara. Verðlaunahafar eru:

Go to News Site