Collector
Umferðarslys á Reykjanesbraut í norðurátt | Collector
Umferðarslys á Reykjanesbraut í norðurátt
Fréttastofa RÚV

Umferðarslys á Reykjanesbraut í norðurátt

Umferðarslys átti sér stað á Reykjanesbraut í norðurátt rétt eftir klukkan þrjú í dag. Þetta staðfestir varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Tveir sjúkrabílar og einn dælubíll voru sendir á vettvang. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er talið að einn sé slasaður en ekki alvarlega.

Go to News Site