Collector
Gagnrýna eftirlitsleysi með Gauksstöðum: „Þannig að ég er bara labbandi launatékki“ | Collector
Gagnrýna eftirlitsleysi með Gauksstöðum: „Þannig að ég er bara labbandi launatékki“
Fréttastofa RÚV

Gagnrýna eftirlitsleysi með Gauksstöðum: „Þannig að ég er bara labbandi launatékki“

Fólkið sem dvaldi á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði sem börn segir allt svipaða sögu af búsetu sinni. Þau telja að helsta ástæðan fyrir því af hverju þau voru á fósturheimilinu sé sú að það hafi verið fjárhagslega ábatasamt fyrir eigendur fósturheimilisins. Fólkið sem fréttastofa hefur rætt við lýsir harðræði og andlegu ofbeldi sem það segist hafa orðið fyrir. Einn þeirra sem fréttastofa hefur rætt við er Burkni Þór Sveinsson. Í vitnaskýrslutöku hjá lögreglunni árið 2019 lýsti hann búsetu sinni á heimilinu þannig að hann hefði verið „labbandi launatékki“ fyrir eigendurna. Starfsemi heimilisins var rannsökuð á árunum 2019 til 2021 en rannsóknin var felld niður árið 2021. Í skýrslutökunni segir Burkni Þór að búseta hans á Gauksstöðum hafi verið „hörmuleg“ reynsla. Fengu 300 til 600 þúsund á mánuði með hverju barni Burkni Þór sagði meðal annars orðrétt í skýrslutökunni hjá lögreglu sem hann deildi með fréttastofu: „Það voru engin tengsl, það var engin tilfinning fyrir því að þú værir kominn inn í fjölskyldu. Þú varst bara í geymslu [...] Því erfiðara sem barnið er þeim mun meira fá þau borgað. Og ég sit þarna eftir, og það er bara þú veist, þau fá að gera það sem þau vilja. Af því akkúrat ef ég kem til fulltrúanna minna þá segja þau nei, nei, það getur nú ekki verið, þau eru svo fín og flott. Ertu ekki bara svolítið að ýkja þetta og taka þetta svolítið aðeins innan á þig? Og þannig að já, þá er manni byrjað að líða bara já okei, þannig að ég er bara labbandi launatékki. Og ég verð bara að lúta þeim í einu og öllu.“ Til að átta sig á fjárhagslegu hliðinni sem Burkni bendir á þá kemur fram í svörum frá velferðarsviði Reykjanesbæjar að sveitarfélagið hafi greitt frá 330 þúsund og upp í tæplega 600 þúsund krónur með hverju barni sem sveitarfélagið sendi á Gauksstaði á árunum 2017 og 2018. Á tímabilinu voru þrjú börn úr Reykjanesbæ vistuð á Gauksstöðum. Fjallað er um fósturheimilið Gauksstaði í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Um er að ræða röð þátta um Gauksstaði sem birt hefur verið síðustu vikurnar. Þáttinn má hlusta á hér. Fólk sem bjó á fósturheimilinu Gauksstöðum segist ítrekað hafa reynt að benda barnaverndaryfirvöldum að ekki væri allt með felldu þar. Kona sem bjó á heimilinu hringdi sjálf í barnavernd sem barn og faðir hennar sömuleiðis. Gagnrýnir eftirlitsleysi barnaverndaryfirvalda Kona sem bjó á fósturheimilinu á Gauksstöðum sem unglingur segir að eitt af því sem henni svíði hvað mest sé að Barnaverndin í Reykjavík hlustaði ekki á kvartanir hennar þegar hún leitaði þangað. Konan, sem er um þrítugt í dag, vill ekki koma fram undir nafni. Hún bjó á Gauksstöðum árið 2011. Hún segir líka að annað sem henni svíði sé að íbúar í Garðinum hafi ekki brugðist við þrátt fyrir að margir í nærsamfélaginu hafi vitað af því að á Gauksstöðum hafi ríkt ógnarstjórn.  Konan, sem er um þrítugt í dag, vill ekki koma fram undir nafni. Hún bjó á Gauksstöðum árið 2011. Hún segir um þetta í viðtali: „Sem börn höfum við ekki vit á því hvert við getum leitað. Það eina sem við vissum var að við gátum haft samband við barnavernd, sem hlustaði ekki á okkur. Sem er mjög sorglegt. [...] Skólinn var heldur ekki gjarn á að hlusta á okkur ef við reyndum. Það er líka mjög sárt að vita til þess að það hafi verið mikið rætt um þetta heimili frá því við vorum þarna í byrjun og þangað til í endann. Það vissu allir í bænum hvernig aðstæðurnar voru.“ Hingað til hafa þrír sem voru á fósturheimilinu Gauksstöðum stigið fram undir nafni og mynd í viðtölum við fréttastofu. Tvær konur hafa svo komið í viðtöl en ekki undir nafni. Fréttastofa hefur svo rætt við aðra sem stóðu á bak við kvartanirnar til Barnaverndarstofu vegna Gauksstaða árið 2019 sem svo aftur leiddi til þess að stofnunin kærði eigendurna til lögreglunnar fyrir meint brot á lögum um barnavernd og meint brot í opinberu starfi. Þetta helst hefur ítrekað reynt að fá viðtal við annan eiganda fósturheimilisins á Gauksstöðum, Jón Steinar Konráðsson, en án árangurs. Hann hefur í samtali við Þetta helst vísað í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér á Facebook fyrir skömmu og sagt að hann hafi ekki meira um málið að segja.

Go to News Site