Fréttastofa RÚV
Fatih Birol, framkvæmdastjóri Alþjóðaorkumálastofnunarinnar, segir að heimsbyggðin standi nú frammi fyrir mestu orkukreppu í sögunni vegna stríðsins í Íran. Þetta sagði Birol á fundi um loftslagsmál sem var haldinn í Berlín. Birol segir slíkar kreppur hafi komið árin 1973, 1979 og svo 2022 þegar Rússar réðust inn í Úkraínu. „Mun meira hefur tapast af olíu og gas í þessu stríði en í hinum þremur kreppunum samanlagt,“ sagði hann. Meðal þessu tapist ekki aðeins jarðefnaeldsneyti heldur líka áburður, helíum og brennisteinn. Endurnýjanlegir orkugjafar á uppleið Birol segir hins vegar að brugðist verði með ákveðnum hætti nú auk þess sem tækni sé nú fyrir hendi til að framleiða orku á hagkvæmari hátt. Þá benti hann á að 75% þeirra orkuvera sem hófu starfsemi í heiminum í fyrra séu með endurnýjanlegum orkugjöfum. „Nú er það hlutverk stjórnvalda að móta orkustefnu sína með tilliti til iðnaðarins, en á sama tíma viðhalda samkeppnishæfni atvinnugreina og undirbúa næstu skref fyrir atvinnugreinar framtíðarinnar. Og þetta er frábært tækifæri til þess.“ Olía og gas hafa hækkað mikið í verði eftir að stríðið í Íran hófst vegna takmarkaðrar umferðar um Hormússund. Því lengur sem sú umferð er takmörkuð, því langvinnari verða áhrifin á efnahagslíf heimsins.
Go to News Site