Fréttastofa RÚV
Fyrstu tveir leikir 3. umferðar Bestu deildar karla voru í kvöld. Keflavík tók á móti Breiðabliki og var það fyrsti leikur sumarsins sem er leikinn á grasi. Hvort því sé um að kenna eða ekki þá voru engin mörk skoruð. Keflavík fékk sitt fyrsta stig í kvöld en Breiðablik er með 5 stig eftir þrjá leiki. Á Akranesi var KA í heimsókn og þar fór 1-1. Markús Páll Ellertsson kom ÍA yfir eftir 32 mínútur og Diego Montiel jafnaði þegar 20 mínútur voru eftir. Þetta var líka fyrsta stig KA í vor. ÍA er með 2 stig. Valgeir Valgeirsson, BlikiMummi Lú
Go to News Site