Fréttastofa RÚV
KA vann þó fyrstu hrinu leiksins með 25 stigum gegn 22. Önnur hrinan var jöfn og æsispennandi og fór í upphækkun þar sem KA vann 28-26 og var þá komið í 2-0 í leiknum. Þá tók HK við sér. Þær unnu þriðju hrinuna af harðfylgi, 25-22, og þá slaknaði verulega á spennunni. KA átti sér ekki viðreisnar von í fjórðu hrinu og HK vann hana með 25 stigum gegn 13 og því tók við oddahrina. Þar er leikið upp í 15 og eftir jafna byrjun tók HK frumkvæðið. HK vann oddahrinuna 15-9 og leikinn 3-2 og einvígið því 3-0 og er Íslandsmeistari. Fyrr í vetur varð HK líka bikarmeistari og deildarmeistari og því sannarlega besta lið landsins í blaki kvenna.
Go to News Site