Collector
City jafnaði við Arsenal og efst vegna skoraðra marka | Collector
City jafnaði við Arsenal og efst vegna skoraðra marka
Fréttastofa RÚV

City jafnaði við Arsenal og efst vegna skoraðra marka

Manchester City lagði Burnley í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Erling Haaland skoraði eina mark leiksins á 5. mínútu. City jafnaði við Arsenal að stigum með sigrinum. Bæði lið eru nú með 70 stig eftir 33 leiki. Markatala liðanna er líka jöfn, hvort lið með 37 mörk í plús. City er þó efst þar sem liðið hefur skorað fleiri mörk en Arsenal; 66 mörk á móti 63. Fimm umferðir eru eftir og spennan mikil. Burnley er fallið eftir tapið. Leeds og Bournemouth gerðu 2-2 jafntefli í hinum leik kvöldsins. Bournemouth er í 7. sæti með 49 stig og Leeds er í 15. sæti með 40 stig. Erling Haaland skoraði sigurmark City gegn Burnley í kvöld.EPA / Peter Powell

Go to News Site