Collector
Stjórnarmyndunarviðræður ganga hægt í Danmörku | Collector
Stjórnarmyndunarviðræður ganga hægt í Danmörku
Fréttastofa RÚV

Stjórnarmyndunarviðræður ganga hægt í Danmörku

Stjórnarmyndunarviðræður hafa staðið yfir í margar vikur í Danmörku, eða frá kosningunum 24. mars. Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, og leiðtogi stjórnmálaflokksins Moderaterne, hitti Mette Fredriksen, forsætisráðherra landsins í dag. Fundurinn kom mörgum á óvart en þau höfðu ekki fundað í tólf daga. Bundu því margir vonir við það að samkomulag hefði náðst. Fundurinn var þó öllu tíðindaminni en á horfðist. Lökke sagði að hann hefði einungis hitt Fredriksen til þess að tryggja að svokallað velferðarsamkomulag væri enn í gildi. Hann var fullvissaður um það og sagði eftir fundinn að nú gætu stjórnarmyndunarviðræður haldið áfram. epa12801055 Foreign Minister and party leader Lars Lokke Rasmussen gives a speech during the Moderates' annual meeting in Aarhus, Denmark, 07 March 2026. EPA/Mikkel Berg Pedersen DENMARK OUTEPA / MIKKEL BERG PEDERSEN

Go to News Site