Collector
Gefa 100 brynvarða jeppa og skotfæri til Úkraínu | Collector
Gefa 100 brynvarða jeppa og skotfæri til Úkraínu
Fréttastofa RÚV

Gefa 100 brynvarða jeppa og skotfæri til Úkraínu

Spánn ætlar að senda 100 brynvarða jeppa og skotfæri til landamæravörslu í Úkraínu. Spænski varnarmálaráðherrann Margarita Robles tilkynnti um þetta í heimsókn til Úkraínu í gær samkvæmt úkraínska fjölmiðlinum Kyiv Independent . Robles fundaði með Volodomyr Zelensky Úkraínuforseta um varnarmál í heimsókn sinni og einnig með landamæravörðum. Fyrstu brynvörðu jepparnir, sem eru af gerðinni VAMTAC, verða sendir til Úkraínu í maí. Jepparnir eru meðal annars búnir Rapid Ranger loftvarnarkerfi til að verjast gegn drónaárásum og árásum frá þyrlum í lágflugi. Spánn hefur stutt við Úkraínu bæði hernaðarlega og fjárhagslega síðan Rússar réðust inn í landið árið 2022. Spánn hefur áður gefið Úkraínu skriðdreka og þjálfað úkraínska hermenn. Spánn leggur til hernaðaraðstoð fyrir einn milljarð evra til Úkraínu í ár.

Go to News Site