Collector
Óttast að vatnaskil verði í byggingariðnaði | Collector
Óttast að vatnaskil verði í byggingariðnaði
Fréttastofa RÚV

Óttast að vatnaskil verði í byggingariðnaði

Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins segir að samtökin óttist að ákveðin vatnaskil verði í byggingariðnaði, hann sé í hægagangi, þá sérstaklega sá hluti iðnaðarins sem sjái um byggingu íbúðarhúsnæða. Fjöldi óseldra íbúða á markaði er í sögulegum hæðum og hefur þeim fjölgað um 40 prósent á milli ára. Á sama tíma merkja fasteignasalar kólnun á markaði. „Sölutími hefur lengst og vaxtakostnaður er hár þannig að þessi staða er býsna þröng,“ segir Sigurður. Hann segir að aukinnar svartsýni gæti í geiranum. Hækkun á kostnaði hjá sveitarfélögum og ríki spili þar töluvert inn í. „Hver og einn er að skoða sína stöðu en ef við horfum á hvata til uppbyggingar þá eru þeir minni vegna kostnaðar.“ Monika Hjálmtýsdóttir, formaður Félags fasteignasala var einnig gestur í Kastljósi kvöldsins.

Go to News Site