Collector
Gummi Gummi sér meiri þjálfun ekkert endilega fyrir sér | Collector
Gummi Gummi sér meiri þjálfun ekkert endilega fyrir sér
Fréttastofa RÚV

Gummi Gummi sér meiri þjálfun ekkert endilega fyrir sér

Guðmundur Guðmundsson, fyrrum landsliðsþjálfari í handbolta, segir í viðtali við Síðdegisútvarpið á Rás 2 að frekari þjálfun sé ekkert endilega á döfinni hjá sér. Hann vill frekar ferðast. Guðmundur var í viðtali við Síðdegisútvarpið í gær, fyrst og fremst vegna áhuga síns á náttúruvernd. Dagurinn í dag, sumardagurinn fyrsti, verður tileinkaður náttúru Íslands og þar hefur Guðmundur lengi haft sterkar skoðanir. Í lok spjallsins var hann spurður út í hvort frekari þjálfun væri á döfinni hjá honum, en hann lét af störfum hjá danska liðinu Fredericia á síðasta ári. „Ég er alls ekki viss um að ég fari aftur í þjálfun, svo ég segi það bara alveg eins og er,“ segir Guðmundur. Mögulega væri hann til í að þjálfa eitthvert landslið en hugurinn leiti í raun annað enda hafi hann verið lengi í þjálfun. „Þetta er sjokkerandi þegar maður heyrir sjálfan sig segja þetta en þetta eru 36 ár í þjálfun og þetta hefur tekið mjög mikinn toll. Ég er þannig að ég legg mig alltaf mjög mikið fram í þessu. Mig einhvern veginn langar bara að gera eitthvað annað. Ferðast meira um Ísland, sem dæmi, og kannski önnur lönd líka. En líka bara láta að mér kveða á öðrum sviðum,“ segir Guðmundur en útilokar um leið einhvers konar skrifstofustarf. Guðmundur Guðmundsson, fyrrum landsliðsþjálfari í handbolta, segir í viðtali við Síðdegisútvarpið á Rás 2 að frekari þjálfun sé ekkert endilega á döfinni hjá sér. Hann vill frekar ferðast.

Go to News Site