Collector
Alltaf jafn sárt að rifja þetta upp | Collector
Alltaf jafn sárt að rifja þetta upp
Fréttastofa RÚV

Alltaf jafn sárt að rifja þetta upp

Um árabil þurftu mörg íslensk sveitabörn að fara ung að heiman til að stunda nám í heimavistarskólum. Sum voru haldin mikilli heimþrá og grétu sig í svefn á hverju kvöldi en önnur hugsa með hlýju til þessara ára. Fjallað er um þennan tíma í skólasögu landsins í þáttaröðinni Börnin á vistinni sem Þórgunnur Oddsdóttir hefur umsjón með. Fyrstu árin erfiðust Í Þelamerkurskóla voru börn og unglingar í heimavist frá 1963 og fram á níunda áratuginn. Eydís Björk byrjaði í skólanum haustið 1974. „Fyrstu tvö árin voru bara mjög erfið og maður kannski sagði ekki mikið. Ég var ekki barnið sem kvartaði í foreldrum mínum þegar ég kom heim en maður grét í hljóði og það sem var erfiðast fyrir mig, það voru kvöldin og að fara að sofa,“ segir Eydís. „Auðvitað voru allir með mismunandi upplifun. Við komum frá svo mismunandi heimilum og aðstæðum. Ég held að það séu margir sem hafa þetta á bakinu og það er svo skrítið, nú eru mörg ár síðan þetta gerðist, en það er alltaf jafn sárt þegar þú ferð að grafa í þetta,“ segir hún. „Þegar þú setur þig inn í þessar aðstæður og leyfir þér að hugsa hvernig tilfinningin var. Það er bara mjög sárt. Þetta var erfitt.” „Það er bara gefið skotleyfi“ Á þessum tíma viðgekkst einelti í mörgum skólum og ekki var tekið á því. Rætt er við systkini í þættinum sem áttu ekki góða daga í skólanum. Þau treystu sér ekki til að koma fram undir nafni. „Ef maður pissaði undir þá var maður bara með það þangað til maður fór heim í lok vikunnar. Ef þú varst ekki með aukalak eða sængurfatnað þá þurftir þú bara að sofa í því og lykta eftir því.“ „Þessu fylgdi oft mikil skömm enda önnur börn fljót að finna lyktina og þá er bara kominn grundvöllur fyrir andlegu ofbeldi. Það er bara gefið skotleyfi og það var enginn sem stoppaði það. Þessu lentu bara margir í.“ „Ég var ekki barnið sem kvartaði í foreldrum mínum þegar ég kom heim en maður grét í hljóði,“ segir Eydís Björk Davíðsdóttir sem fór sjö ára gömul í heimavist í Þelamerkurskóla í Hörgárdal. Í útvarpsþáttaröðinni Börnin á vistinni er rætt við fólk sem stundaði nám í heimavistarskólum. Hægt er að hlusta á þættina í spilara RÚV.

Go to News Site