Fréttastofa RÚV
Í dag er útlit fyrir vestlæga eða breytilega átt, 3 til 10 metra á sekúndu. Búist er við bjartviðri að mestu á Norður- og Austurlandi en þokubökkum á stöku stað við sjóinn. Yfirleitt skýjað í öðrum landshlutum og sums staðar þokuloft við vesturströndina. Hiti 5 til 13 stig. Norðlægari vindur á morgun af svipuðum styrk. Skýjað á norðurhelmingi landsins, sums staðar smávegis væta og svalt í veðri eða hiti 3 til 8 stig. Bjartviðri sunnantil á landinu með hita að 13 stigum. Um og eftir helgina virðast spár nokkuð sammála um að áttin verði suðlæg með mildu veðri og vætu sem einkum verður bundin við sunnan- og vestanvert landið. RÚV / Ragnar Visage
Go to News Site