Collector
Þetta eru leiktímar Íslands á EM | Collector
Þetta eru leiktímar Íslands á EM
Fréttastofa RÚV

Þetta eru leiktímar Íslands á EM

Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur gefið út leiktíma í undanriðlum Evrópumóts kvenna í desember. Annað Evrópumótið í röð er Ísland meðal þátttökuþjóða. Ísland leikur í A-riðli mótsins sem verður í rúmensku borginni Oradea, nærri ungversku landamærunum. Ísland mætir Slóveníu í fyrsta leik 3. desember klukkan 16:30. Laugardaginn 5. desember er komið að Svartfjallalandi, líka klukkan 16:30. Lokaleikur riðilsins er svo gegn Ungverjalandi mánudaginn 7. desember og er sá leikur klukkan 19. Að þeim leik loknum halda tvö efstu lið riðilsins áfram í milliriðil en hin tvö halda heim á leið. Allir leikirnir verða sýndir beint á RÚV. Íslenska liðið er með á EM annað mótið í röðRÚV / Mummi Lú

Go to News Site