Fréttastofa RÚV
Hið árlega Víðavangshlaup ÍR fór fram í miðborg Reykjavíkur í dag. Löng hefð er fyrir þessu hlaupi á Sumardaginn fyrsta og var þetta í 111. sinn sem hlaupið er. Í ár voru rúmlega 800 hlauparar skráðir til keppnji og að venju voru hlaupnir 5 kílómetrar. Í karlaflokki sigraði Stefán Pálsson úr Ármanni á 15:18 mínútum. Í kvennaflokki varði Andrea Kolbeinsdóttir titil sinn frá í fyrra og bætti eigið met frá í fyrra. Hún hljóp í ár á 16:02 mínútum og bætti met sitt um 16 sekúndur. Stefán og Andrea teljast jafnframt Íslandsmeistarar í 5 kílómetra götuhlaupi. Andrea Kolbeinsdóttir varði titil sinn í Víðavangshlaupi ÍR í dag og bætti eigið met frá í fyrra.Facebook / Frjálsíþróttasamband Íslands
Go to News Site