Fréttastofa RÚV
Valdimar Örnólfsson lést mánudaginn 20. apríl, 94 ára að aldri. Hann var einn af atkvæðamestu íþróttafrömuðum síðustu aldar og mikill skíðakappi. Ferill Valdimars var langur og farsæll. Hann varð meðal annars Íslandsmeistari á skíðum 1952 og í frjálsum íþróttum 1953, kenndi leikfimi í Ríkisútvarpinu um áratugaskeið og var sæmdur riddarakrossi Fálkaorðunnar. Hann starfaði sem íþróttakennari árum saman, var íþróttastjóri Háskóla Íslands frá 1967 og þar til hann fór á eftirlaun og einn stofnenda Skíðaskólans í Kerlingafjöllum sem laðaði til sín tugi þúsunda manna. Valdimar lét einnig að sér kveða í tónlist og sviðslistum. Hann lék Harald í Skugga-Sveini í Þjóðleikhúsinu 1961-62, lærði söng hjá Sigurði F. Demetz 1958-61, var einn af stofnendum Söngsveitarinnar Filharmoníu, söng í MR kvartettinum, Stúdentakórnum og söng um áratugaskeið með Karlakórnum Fóstbræðrum og síðar með Gömlum Fóstbræðrum. Valdimar fæddist á Suðureyri á Súgandafirði árið 1932. Foreldrar hans voru Örnólfur Valdimarsson kaupmaður og útgerðarmaður og Ragnildur Kristbjörg Þorvarðardóttir kennari og húsmóðir. Árið 1963 kvæntist hann Kristínu Jónasdóttur og þau eignuðust þrjá syni, níu barnabörn og tvö barnabarnabörn. Útför Valdimars fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn 11. maí.
Go to News Site