Fréttastofa RÚV
Af þeim þrettán sem sátu í ríkisstjórn árið 2024, áður en núverandi ríkisstjórn tók við, eru aðeins þrír eftir á þingi. Það eru þau Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, Guðlaugur Þór Þórðarson, einnig frá Sjálfstæðisflokki, og Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins. Þá snýr Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir senn aftur. Vinstri græn duttu út af þingi eða hættu Tveir fyrrverandi ráðherrar Vinstri grænna, Guðmundur Ingi Guðbrandsson og Svandís Svavarsdóttir, náðu ekki inn á þing í alþingiskosningunum í nóvember 2024. Þau voru félags- og vinnumarkaðsráðherra og innviðaráðherra. Svandís gaf ekki kost á sér sem formaður Vinstri grænna á síðasta landsfundi og Guðmundur Ingi hætti einnig sem varaformaður. Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, sagði skilið við þingmennsku vorið 2024 til að bjóða sig fram til forseta. Hún er nú stjórnarformaður Fasteignafélags Háskóla Íslands, situr í stjórn fasteignafélagsins Eikar og er stjórnarformaður Listahátíðarinnar í Reykjavík, meðal annars. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, sem tók sæti í ríkisstjórn eftir að Katrín hætti á þingi, sóttist ekki eftir endurkjöri í þingkosningunum sem haldnar voru í nóvember 2024. Hún er nú sviðsstjóri velferðarsviðs hjá sveitarfélaginu Fjallabyggð. Sjálfstæðismenn kvöddu á kjörtímabilinu, einn tímabundið Bjarni Benediktsson, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir náðu öll kjöri í síðustu kosningum. Ekkert þeirra situr þó á þingi í augnablikinu. Bjarni Benediktsson, sem varð forsætisráðherra eftir brotthvarf Katrínar, tilkynnti stuttu eftir kosningarnar að hann ætlaði að hætta á þingi. Þá sóttist hann ekki eftir endurkjöri sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann er nú framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tilkynnti að hún hygðist halda til Bandaríkjanna í nám í maí 2025. Varamaður tók sæti fyrir hana haustið 2025 en Áslaug hefur boðað endurkomu sína á þing í sumar að útskrift lokinni. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tilkynnti í vikunni að hún ætlaði að láta af þingmennsku. Utanríkisráðherra hefur skipað hana sendiherra til fimm ára frá og með 1. ágúst. Þess má geta að bæði Þórdís Kolbrún og Bjarni voru þingmenn í sama kjördæminu, Suðvesturkjördæmi. Bryndís Haraldsdóttir, sem skipaði þriðja sæti á listanum, er því orðin fyrsti þingmaður kjördæmisins. Eini fyrrverandi ráðherra Framsóknar hætti sem formaður Framsókn missti átta þingmenn í kosningunum haustið 2024. Þar af þrjá ráðherra. Það eru Lilja Alfreðsdóttir, Willum Þór Þórsson og Ásmundur Einar Daðason. Ásmundur Einar lét af embætti sem ritari Framsóknar í september síðastliðnum og sagði skilið við stjórnmálin. Willum Þór var kjörinn forseti ÍSÍ. Aðeins einn fyrrverandi ráðherra flokksins náði inn, þáverandi formaðurinn Sigurður Ingi Jóhannsson. Hann tilkynnti þó í október 2025 að hann hygðist ekki sækjast eftir endurkjöri til formanns. Lilja Alfreðsdóttir tók við af Sigurði Inga og er nú formaður Framsóknar utan þings.
Go to News Site