Fréttastofa RÚV
Þór tók á móti Fram á Akureyri í Bestu deild karla í dag. Leikurinn var fyrsti heimaleikur Þórs á nýju gervigrasvelli þeirra. Tímamótunum fagnaði Þór með því að vinna Fram með einu marki gegn engu. Sebastian Haugland skoraði eina mark leiksins á 49. mínútu. Þór er með sex stig eftir þrjá leiki en Fram með fjögur. Stuðningsmenn Þór höfðu ástæðu til að gleðjast í dagRúv / Mummi Lú
Go to News Site