Fréttastofa RÚV
Enn er óljóst hvað olli alvarlegu lestarslysi á Sjálandi í Danmörku í morgun. Rannsóknarnefnd samgönguslysa skoðar hvort tæknimál hafi verið í lagi og hvort mannleg mistök hafi orðið. Fimm eru enn í lífshættu. Ætti ekki að vera hægt Tvær lestir, sem komu úr gagnstæðum áttum á sama lestarspori, skullu saman á Gribskov-línunni milli Hillerød og Kagerup á Norður-Sjálandi um klukkan hálf sjö í morgun. 18 slösuðust, þar af fimm alvarlega, en 38 voru um borð. Claus René Pedersson, öryggisstjóri Lokaltog sem rekur línuna, sagði að á þeim kafla sem áreksturinn varð væri aðeins eitt spor sem væri ætlað fyrir lestir í báðar áttir. Hins vegar væru kerfi til staðar sem ættu að koma í veg fyrir slys. „Þetta ætti ekki að vera hægt og við gerum allt sem við getum til að koma í veg fyrir þetta með boðkerfi og þjálfun fyrir lestarstjóra.“ Yfirvöld í Danmörku hafa hafið umfangsmikla rannsókn á alvarlegu lestarslysi á Sjálandi í morgun. Ekki er vitað hvað olli slysinu og fimm eru í lífshættu. Umfangsmikil rannsókn á tildrögum slyssins er hafin. Klaus Jensen, deildarstjóri rannsóknarnefndar samgönguslysa, sagði í samtali við danska ríkisútvarpið, DR , að of snemmt væri að segja til um hvað gerðist. „Við erum að skoða hvort eitthvað tæknilegt hafi gerst í sambandi við boðkerfið og lestarteinana, og hvort mannleg mistök hafi orðið. Við þurfum að safna öllum gögnum og taka viðtöl við fjölda fólks og við getum ekki tjáð okkur um málið fyrr en það hefur verið gert.“ Lokaltog hefur heitið því að vinna með yfirvöldum við að komast til botns í hvað fór úrskeiðis.
Go to News Site