Collector
Býr til risastórar útgáfur af hversdagslegum hlutum | Collector
Býr til risastórar útgáfur af hversdagslegum hlutum
Fréttastofa RÚV

Býr til risastórar útgáfur af hversdagslegum hlutum

Steve Wainwright býr í Peterborough í Bretlandi og dó ekki ráðalaus þegar hann fór á eftirlaun. Hann hélt út í skúr í garðinum sínum og hóf að smíða risastórar útgáfur af hversdagslegum hlutum. Hann smíðaði til dæmis kló af hleðslutæki fyrir síma sem er einnig hönnuð sem skápur. Það tók Wainwright tvær vikur að smíða klóna. Síðan þá hefur hann verið óstöðvandi. „Ég treð bara marvaðann og syndi þangað sem straumurinn ber mig. Það er engin fyrirfram ákveðin niðurstaða, ég bara nýt þess að skapa. Ef þið viljið kalla mig klikkaðan eða öðrum uppnefnum held ég bara áfram að smíða og verð ánægður.“

Go to News Site