Fréttastofa RÚV
Bandaríkin ætla að bjóða Vladimír Pútín, forseta Rússlands, á leiðtogafund G20-ríkjanna, tuttugu stærstu iðnríkja heims, sem haldinn verður í desember. Donald Trump Bandaríkjaforseti segist þó efast um að Pútín mæti á fundinn en sagði að það yrði líklega gagnlegt ef hann myndi mæta. Fundurinn verður haldinn í Flórída í Bandaríkjunum og von er á þjóðarleiðtogum 20 helstu iðnríkja heims á fundinn. Aðstoðarutanríkisráðherra Rússa, Alexander Pankin, sagði í viðtali við rússnesku fréttastofuna RIA Novosti að Rússum hefði borist boð á fundinn. Dmitry Peskov, talsmaður rússneskra stjórnvalda, segir að Pútín sé ekki búinn að ákveða hvort hann þiggi boðið á fundinn. Rússar reknir úr G8 árið 2014 Trump hefur gagnrýnt Barack Obama fyrrum Bandaríkjaforseta fyrir að hafa rekið Rússa úr G8, sem þá taldi átta þjóðir, þegar Rússar innlimuðu Krímskaga árið 2014. Pútín hefur þó ekki tekið þátt í G20 fundi síðan 2019, fyrst vegna Covid-faraldursins og síðan vegna innrásarinnar í Úkraínu. Árið 2023 gaf Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn (ICC) út alþjóðlega handtökuskipun á Pútín vegna innrásarinnar sem leiddi til þess að hann hefur forðast ferðalög til landa þar sem hann gæti átt á hættu að verða handtekinn. Bandaríkin eru þó ekki aðili að Alþjóðlega sakamáladómstólnum. Pútín þáði þó boð á fund með Trump í Alaska á síðasta ári, en það var í fyrsta sinn sem hann kom til vestræns lands eftir að innrásin hófst í Úkraínu 2022.
Go to News Site