Collector
Bandarískur sérsveitarmaður ákærður fyrir að hafa hagnast á veðmálum tengdum handtöku Maduros | Collector
Bandarískur sérsveitarmaður ákærður fyrir að hafa hagnast á veðmálum tengdum handtöku Maduros
Fréttastofa RÚV

Bandarískur sérsveitarmaður ákærður fyrir að hafa hagnast á veðmálum tengdum handtöku Maduros

Bandarískur sérsveitarmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa nýtt sér leynilegar upplýsingar til að veðja á handtöku Nicolas Maduro, fyrrum forseta Venesúela, áður en hann og eiginkona hans voru handtekin í aðgerðum bandaríska hersins í janúar. Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá því að sérsveitarmaðurinn Gannon Ken Van Dyke hafi skráð sig á Polymarket 26. desember og tekið þátt í veðmálum sem tengdust Venesúela og Maduro. Van Dyke hagnaðist um 409 þúsund dollara í veðmálunum sem jafngildir rúmum 50 milljónum íslenskra króna. Sérsveitarmaðurinn bjó yfir leynilegum upplýsingum um aðgerðirnar en hann kom að undirbúningi þeirra og tók sjálfur þátt í handtökunum. Í tilkynningu sem veðmálafyrirtækið birti á samfélagsmiðlinum X í gær kemur fram að fyrirtækið hafi gert bandaríska dómsmálaráðuneytinu viðvart þegar upp komst um að notandi væri að veðja á mál sem byggi á leynilegum upplýsingum ríkisstjórnarinnar. „Innherjaviðskipti verða ekki liðin á Polymarket. Handtakan er sönnun þess að kerfið virkar,“ segir í færslunni sem vísar til handtöku og ákæru Van Dyke. Van Dyke er meðal annars ákærður fyrir að hafa hagnast á því að hafa nýtt sér leynilegar upplýsingar með ólögmætum hætti, upplýsingaþjófnað, ólöglegar peningamillifærslur og fjársvik. Verði hann fundinn sekur á hann yfir höfði sér allt að 50 ára fangelsisdóm.

Go to News Site