Fréttastofa RÚV
Írski stórleikarinn Cillian Murphy hyggst lesa Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson. Hlaðvarpsstjórnandinn og bókaáhugamaðurinn Jack Edwards færði Murphy eintak af enskri þýðingu bókarinnar þegar þeir ræddust við á dögunum. Edwards sagði bókina vera eins konar íslenska hliðstæðu bókarinnar Small Things Like These eftir Claire Keegan. Hún sé stutt og fjalli um gæsku, um að gera öðrum góðverk og um ósérhlífni. @jack_edwards I bought Cillian Murphy a stack of personalised book recommendations — from books that reminded me of the themes of the Peaky Blinders movie, to a Christmas book I thought he’d love. Let me know how I did!!!! Books: Glorious Exploits by Ferdia Lennon Martyr! by Kaveh Akbar Advent by Gunnar Gunnarson Who should I go book shopping for next ♬ original sound - Jack Edwards „Þetta gæti verið kvikmynd,“ svaraði Murphy og þá bætti Edwards við: „Ég held að þú gætir orðið frábær í þessari mynd.“ Hvort Murphy eigi eftir að bregða sér í gervi Benedikts og draga þá Eitil og Leó með sér inn á hrímhvítt bíótjaldið á eftir að koma í ljós en hann lék aðalhlutverkið í kvikmyndinni Small Things Like These sem gerð var eftir bók Keegan og kom út 2024. Það vakti talsverða athygli hér á landi í vetur þegar Murhpy mælti með Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Laxness í hlaðvarpi Edwards. Hann sagðist hreinlega ekki hafa getað lagt bókina frá sér. Hún væri meistaraverk.
Go to News Site