Collector
Abbas Aragchi segist hafa rætt vopnahlé við yfirvöld í Pakistan | Collector
Abbas Aragchi segist hafa rætt vopnahlé við yfirvöld í Pakistan
Fréttastofa RÚV

Abbas Aragchi segist hafa rætt vopnahlé við yfirvöld í Pakistan

Utanríkisráðherra Írans segist í færslu á Telegram hafa rætt við háttsetta pakistanska embættismenn um þróun mála í Mið-Austurlöndum og vopnahlé. Abbas Araghchi er utanríkisráðherra Írans.EPA / MARTIAL TREZZINI Abbas Aragchi nafngreindi sérstaklega þá Ishaq Dar utanríkisráðherra og Asim Munir, yfirmann pakistanska hersins. Hann upplýsti þó ekki hvort hann ætti við vopnahlé milli Ísraels og Líbanon, milli Írans og Bandaríkjanna eða hvor tveggja. Stjórnvöld í Pakistan segjast reiðubúin að miðla áfram málum milli Bandaríkjanna og Írans og að allt sé til reiðu í höfuðborginni Islamabad komi til viðræðna.

Go to News Site