Collector
Ekkert spurst til Íslendings í Búdapest í nær tvær vikur | Collector
Ekkert spurst til Íslendings í Búdapest í nær tvær vikur
Fréttastofa RÚV

Ekkert spurst til Íslendings í Búdapest í nær tvær vikur

Íslendingur á sextugsaldri hvarf sporlaust í Búdapest í Ungverjalandi fyrr í apríl. Vísir greindi fyrst frá hvarfi hans í gær. Sonur hans segir kvíða og svefnlausar nætur hafa einkennt undanfarnar vikur. Maðurinn heitir Hákon Þór Elmers og er 53 ára gamall. Embætti ríkislögreglustjóra staðfestir að málið hafi verið á borði alþjóðadeildar frá því í síðustu viku og sé unnið samkvæmt almennu verklagi með lögregluyfirvöldum ytra og lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Síðast sást til hans 11. apríl á flugvelli í Búdapest en hann var þá á leið til Íslands. Aron Freyr Elmers sonur Hákonar segist hafa talað við pabba sinn í gegnum FaceTime skömmu áður en að hann hafi ekki litið vel út. Reyna að rekja farsíma Vinur Hákonar fylgdi honum út á flugvöll og þaðan hafi flugvallarstarfsfólk átt að fylgja honum út í vél. Hákon hafi stungið starfsfólkið af og farið af flugvellinum í strætisvagni. Ekkert hefur spurst til hans síðan. Aron segir slökkt á farsíma Hákonar en segir lögreglu nú reyna að sjá hvort hægt sé að rekja ferðir hans í gegnum símann. Hákon hafi verið á ferðalagi um Evrópu um nokkurt skeið og hafi verið í Búdapest undanfarna þrjá til fjóra mánuði. Aron segir föður sinn hafa verið ringlaðan að undanförnu. Fjölskyldan eigi erfitt með að gera sér í hugarlund hvað hafi orðið um hann og undanfarnar tvær vikur hafa verið erfiðar. „Erfitt. Ég er áhyggjufullur yfir því. Kvíði og svefnlausar nætur og bara tekur toll á mann.“

Go to News Site