Fréttastofa RÚV
Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir verður í eldlínunni á laugardag þegar félagslið hennar, Bayern München, mætir Barcelona í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV og hefst klukkan 16:15. Glódís er fyrirliði Bayern sem er í fyrsta skipti síðan 2021 komið í undanúrslit keppninnar. Þetta er sömuleiðis í fyrsta sinn á ferlinum sem Glódís spilar undanúrslitaleiki í þessari keppni. Glódís Perla Viggósdóttir og liðsfélagar hennar í Bayern München mæta Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Fyrri leikur liðanna er á morgun en Glódís segir það risaskref fyrir sig og félagið að vera komið í undanúrslit. „Við höfum verið svona í átta liða úrslitum inn og út en aldrei náð að taka skrefið inn í undanúrslitin. Þannig að þetta er bara gríðarlega skemmtilegt og maður hefur aldrei verið eins nálægt stóra markmiðinu,“ segir Glódís. Lærðu mikið af stóru tapi í deildarkeppninni Barcelona og Bayern mættust í deildarhluta Meistaradeildarinnar fyrr í vetur og þar tapaði Bayern stórt, 7-1. Glódís segir liðið hafa lært mikið af þeim leik og muni koma öðruvísi inn í leikinn á morgun heldur en þær gerðu þá, með aðra áherslupunkta. „Okkur langaði rosalega að spila eins og við höfum verið að spila í okkar deild og brenndum okkur bara á því. Við vorum að mæta bara allt öðru leveli heldur en við höfum verið að gera í deildinni okkar og þær bara refsuðu fyrir það og kannski fór hausinn aðeins hjá okkur.“ Eini tapleikur Bayern í keppninni er þetta stórtap gegn Barcelona sem hefur verið í úrslitum Meistaradeildarinnar síðustu fimm ár, þar af þrisvar staðið uppi sem sigurvegari. Undanúrslitaleikirnir verða spilaðir á Allianz Arena og Camp Nou, tveimur stórum völlum með mikla sögu. „Við eigum heimaleikinn fyrst þannig kannski hugsum um að ná í góð úrslit þar og koma okkur í góða stöðu fyrir seinni leikinn sem verður kannski aðeins erfiðari á erfiðari útivelli.“ Það verður ekki í fyrsta skipti sem Glódís spilar á Camp Nou en liðin mættust líka í Meistaradeildinni 2023. „Ótrúlega gaman að fá að spila á honum, hvað þá svona stóran leik og vonandi verður uppselt, 70 þúsund manns, það væri náttúrulega bara draumur.“ Glódís spilaði á Old Trafford í 8-liða úrslitunum þar sem Bayern hafði betur gegn Manchester United í tvígang, 3-2 á útivelli og 2-1 á heimavelli þar sem Glódís skoraði. „Þetta er langbesta gras sem ég hef spilað á og ég hélt nú alveg að ég væri búin að spila á góðum grasvöllum,“ segir Glódís um upplifunina af Old Trafford. „Maður labbar þarna inn og þetta er alveg magnað sko. Maður fékk alveg svona pínu svona gæsahúð þegar maður labbaði út og ótrúlega gaman að hafa fengið að upplifa þetta og gaman að vinna líka.“ Heldur tryggð við Bayern sem vill taka næsta skref Bayern tryggði sér í vikunni fjórða þýska meistaratitilinn í röð og um miðjan maí spilar liðið bikarúrslitaleik gegn Wolfsburg. „Alveg síðan ég kom í klúbbinn hefur deildin og bikarinn nánast verið þú veist, ekki til að semja um. Það á að vinna það og ef það er ekki gert þá var tímabilið ekki gott tímabil og auðvitað er þá Meistaradeildin það næsta sem maður getur náð.“ Glódís segir það hafa verið risaskref fyrir sig og félagið að hafa komist í undanúrslitin núna. Mikið hefur breyst í kvennaboltanum á síðustu árum og hann orðið betri og betri. „Það hefur orðið erfiðara að komast svona langt og líka einmitt að vera að ná árangri í deildinni á sama tíma. Þetta er klárlega eitthvað sem mig dreymir um og þau eru alltaf að reyna að fjárfesta í liðinu og gera það sem þarf til að til að við komumst þangað.“ Í lok síðasta árs framlengdi Glódís við Bayern til ársins 2028. Henni líður vel í München þar sem verið er að fjárfesta í auknum mæli í kvennaliðinu. Á næsta tímabili verður til að mynda nýr 15 þúsund manna leikvangur tekinn í notkun en áhuginn er mikill á liðinu. „Fólk er duglegt að koma og við erum með virkilega góða stuðningsmenn sem fylgja okkur bæði á heimavöll og útivöll. Það er bara ofboðslega gaman að spila fyrir framan og finna svona stuðninginn og orkuna úr stúkunni.“ Glódís, sem bætti nýverið íslenska landsleikjametið, játar því að áhugi hafi verið á henni frá öðrum liðum en hún segist vera trygg manneskja sem vilji halda áfram með það sem hún hefur lagt mikið í. „Ég er búin að leggja gríðarlega vinnu og allt liðið í að komast á þann stað sem við erum í dag og okkur langar að sjá hversu langt við komumst og ég vildi vera partur af því áfram.“ Fyrri undanúrslitaleikur Bayern München og Barcelona í Meistaradeildinni er á dagskrá RÚV á laugardag klukkan 16:05. Seinni leikurinn fer fram í Barcelona sunnudaginn 3. maí og verður sömuleiðis í beinni á RÚV.
Go to News Site