Fréttastofa RÚV
Sinueldur logar við N1 í Fossvogi. Guðjón Ingason, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir einn slökkviliðsbíl hafa verið sendan á vettvang en eldurinn sé tiltölulega lítill eins og er. Starfsfólk bensínstöðvarinnar N1 hefur þegar hafist handa við að reyna að slökkva eldinn, meðal annars með vatni í fötum, að sögn fréttamanns RÚV á vettvangi. Aðspurður segir Guðjón eldinn ekki mikið áhyggjuefni að svo stöddu, litlar líkur séu á því að hann berist inn á bílaplanið að dælunum. Fréttin verður uppfærð eftir því sem upplýsingar berast.
Go to News Site