Fréttastofa RÚV
Sleggjukastarinn Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir bætti í dag Íslandsmetið í sleggjukasti á Kim Keino Classic-mótinu. Hún kastaði 73,88 metra og bætti nýsett Íslandsmet Elísabetar Rutar Rúnarsdóttur um tæpan metra. Elísabet og Guðrún hafa skipst á að eiga Íslandsmetið undanfarin ár. Guðrún bætti eigið met í mars þegar hún kastaði 71,41 metra. Elísabet jafnaði það met og bætti svo 18. apríl síðastliðinn með 72,89 metra kasti og tryggði sér þá keppnisrétt á EM. Nú hefur Guðrún gert það sama og enn einu sinni nælt sér í Íslandsmetið. Kastið skilaði Guðrúnu 3. sæti á mótinu en hin kanadíska Camryn Rogers stóð uppi sem sigurvegari með kasti upp á 80,03 metra. Íslendingarnir eru nú orðnir fjórir sem eru komnir með þátttökurétt á EM í Birmingham í ágúst. Auk Guðrúnar og Elísabetar er Baldvin Þór Magnússon búinn að ná lágmarki í 10.000 metra hlaupi og Hilmar Örn Jónsson í sleggjukasti.
Go to News Site