Collector
Starfsfólk N1 slökkti sinueld skammt frá bensínstöðinni | Collector
Starfsfólk N1 slökkti sinueld skammt frá bensínstöðinni
Fréttastofa RÚV

Starfsfólk N1 slökkti sinueld skammt frá bensínstöðinni

Sinueldur kviknaði við N1 í Fossvogi. Guðjón Ingason, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, sagði einn slökkviliðsbíl hafa verið sendan á vettvang. Eldurinn hafi verið tiltölulega lítill. Er slökkvilið bar að garði hafi starfsfólk bensínstöðvarinnar þegar ráðið niðurlögum eldsins. Slökkviliðsmenn hafi engu að síður dælt meira vatni á svæðið til öryggis.

Go to News Site