Fréttastofa RÚV
RÚV / Ragnar Visage Nokkurra bíla árekstur varð á Reykjanesbraut fyrir skemmstu. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu skullu þrír til fimm bílar saman. Einn sjúkrabíll og dælubíll voru sendir á vettvang en ekki er talið að alvarleg meiðsl hafi orðið á fólki en einn er slasaður. Dælubíll var sendur á vettvang til þess að hreinsa brak af brautinni. Samkvæmt Guðjóni Ingasyni, varðstjóra hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, varð einnig minniháttar olíuleki.
Go to News Site