Fréttastofa RÚV
Breiðablik og Þróttur áttust við í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í kvöld. Breiðablik, sem er ríkjandi Íslands- og bikarmeistari, sigraði 2-0. Edith Kristín Kristjánsdóttir skoraði fyrra mark Blika á 35. mínútu eftir góða stoðsendingu Öglu Maríu Albertsdóttur, 1-0. Einungis fjórum mínútum síðar lagði Agla upp annað mark og þá var það Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir sem afgreiddi boltann í netið. Þróttarar unnu sig vel inn í leikinn og ógnuðu marki Blika vel undir lokin en inn vildi boltinn ekki. Lokatölur í Kópavogi urðu því 2-0 og þrjú stig til meistaranna í fyrsta leik. Mark á fyrstu mínútu Þá mættust Víkingur og Stjarnan í Fossvogi í kvöld og ekki leið á löngu þar til fyrsta markið leit dagsins ljós því það kom strax á fyrstu mínútu leiksins. Þá sendi Jasmín Erla Ingadóttir boltann á Freyju Stefánsdóttur sem var vel staðsett í teig og kom heimakonum yfir, 1-0. Stjörnukonur svöruðu á 22. mínútu þegar Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir jafnaði metin, 1-1, og þannig stóð í hálfleik. Það var svo á 80. mínútu að Jasmín Erla fann sigurmark Víkinga og 2-1 sigur þeirra varð raunin. Fyrsta umferðin heldur áfram á morgun. Þá tekur Fram á móti ÍBV, Þór/KA og FH mætast fyrir norðan og Valur og Grindavík eigast við á Hlíðarenda.
Go to News Site