Fréttastofa RÚV
Keflavík tók á móti Haukum í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Bónus deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Haukar unnu fyrsta leikinn en Keflavík hafði betur í kvöld. Staðan er því jöfn 1-1 en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslitaleikinn. Haukar voru yfir í stöðunni 2-3 en þaðan náðu Keflvíkingar foyrstunni og héldu henni raunar allt þar til flautað var af. Liðið leiddi með 19 stigum í hálfleik, 60-41 og leiknum lauk svo með 17 stiga sigri Keflvíkinga 98-81. Sara Rún Hinriksdóttir var atkvæðamest Hauka með 21 stig. Liðin mætast aftur á þriðjudag. Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 21 stig.RÚV / Mummi Lú
Go to News Site