Collector
Valur tók forystuna í úrslitaeinvíginu | Collector
Valur tók forystuna í úrslitaeinvíginu
Fréttastofa RÚV

Valur tók forystuna í úrslitaeinvíginu

Valur og FH mættust í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta í kvöld. Leikið var á Hlíðarenda og höfðu heimamenn betur í miklum markaleik, 37-33. Allt var hnífjafnt í hálfleik, 16-16, og jafnræði ríkti milli liðanna en snemma í seinni hálfleik fékk Jón Bjarni Ólafsson, línumaður FH, rautt spjald og þá sigu Valsmenn fram úr og komust í fimm marka forskot, 24-19, á 40. mínútu. FH minnkaði muninn í eitt mark, 26-25, en Valsarar bættu þá enn fremur í og unnu loks öruggt, 37-33. Liðin mætast aftur á mánudag í Kaplakrika. Arnór Snær Óskarsson skoraði 12 mörk í kvöld.Rúv / Mummi Lú

Go to News Site