Collector
Íslenskur kvikmyndatökumaður vann Gullruten-verðlaun fyrir bestu kvikmyndatöku | Collector
Íslenskur kvikmyndatökumaður vann Gullruten-verðlaun fyrir bestu kvikmyndatöku
Fréttastofa RÚV

Íslenskur kvikmyndatökumaður vann Gullruten-verðlaun fyrir bestu kvikmyndatöku

Jakob hefur getið sér gott orð fyrir kvikmyndatökur bæði hérlendis og í Noregi.Rúnar Gíslason Íslenski kvikmyndatökumaðurinn Jakob Ingason vann til verðlauna fyrir bestu kvikmyndatöku á norsku sjónvarpsverðlaunahátíðinni Gullruten sem veitt voru á fimmtudaginn. Verðlaunin fékk Jakob fyrir kvikmyndatöku fyrir þáttaröðina Heajastallan sem nefnist Brúðkaupsveislan á íslensku og er aðgengileg í Spilara RÚV . Þættirnir eru norskir og voru teknir upp í Lapplandi í Norður-Noregi. Jakob hefur verið kvikmyndatökumaður í mörg ár og starfað bæði í Noregi og á Íslandi við fjölda kvikmynda og sjónvarpsþáttaraða . Hann stjórnaði til að mynda kvikmyndatöku í kvikmyndinni Ég man þig og sjónvarpsþáttunum Afturelding.

Go to News Site